blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

5.06.2005

Drami og fjölgun

Það fjölgaðií fjölskyldunni í fyrradag. Við eignuðumst dverghamstur!! : Pínu litið kvikindi. Hún heitir víst Mína.. ég fékk engu um það ráðið! Mína hefur nóg að gera allan sólarhringinn! Hún er með hlaupahjól í búrinu sínu sem hún stigur ekki út ur milli 11 á kvöldin á 6 á morgnanna! Á milli lúra er hún svo að endurinnrétta húsið sitt... hún virðist hafa mjög óákveðin smekk og getur ekki alveg sætt sig við "lookið" sem hún hefur í dag.. greinilega ekki nægilega móðins... Þannig mikill tími fer í að flytja "rúmmið" á milli horna og hæða til að finna rétta fílinginn sennilega! Birta er að tapa sér af kæti.. að sjálfsögðu var þetta Besti dagur lífs hennar.. en það er kanski ekkert að marka þvi hún sagði að í dag væri versti dagur lífs hennar... vegna þess það er úti-leikfimi í dag.. þannig dramatíkin er eftirvill svoliðið mikil hjá henni þessi "árin"

0 Comments:

Post a Comment

<< Home